27. janúar 2007
Nýtt útlit á vef Handknattleiksfélags Kópavogs
Í dag var opnað nýtt útlit á vef Handknattleiksfélags Kópavogs á 37 ára afmæli félagsins. Handknattleiksfélag Kópavogs var einmitt fyrsti aðilinn til að fá vef uppsettan í OZON-Vefumsjónarkerfinu fyrir rúmum 3 árum síðan. Vefurinn er gríðarlega mikið notaður af félagsmönnum og fær hann yfir 1000 heimsóknir á degi hverjum. Um 20 aðilar sjá um að setja efni inná vefinn.

Útlit vefsins var endurhannað, vefurinn breikkaður og nokkrum nýjum fídusum bætt við til að gera vefinn þægilegri í noktun. Viljum við hjá OZON óska öllum HK-ingum til hamingju með daginn og nýja vefinn.

Hægt er að skoða vefinn á slóðinni www.hk.is

Til baka
 
Senda póst