Vefsíðugerðin ehf. sem að sér um sölu á OZON-Vefumsjónarkerfinu hefur verið starfandi allt frá haustinu 2000. Hafin var þróun á OZON-Vefumsjónarkerfinu haustið 2001. Ástæðan fyrir því að farið var útí þróun á OZON-Vefumsjónarkerfinu var sú að okkur fannst vanta kerfi á markaðinn sem að var notendavænt og á sanngjörnu verði. Einu fyrirtækin sem að höfðu efni á að kaupa svona kerfi voru stórfyrirtæki en var okkar hugmynd sú að reyna að koma til móts við smærri fyrirtækin sem að áður höfðu ekki efni á slíkum kerfum.
|